23september
Sumarið er búið, er búin að kíkja á Kittu, flutti að heiman aftur, komin með litla holu í Fossheiðinni, tölvan mín dó, Lilja fór í brjóstaminnkun, Gunný eignaðist kærasta, allir óléttir í kringum og rosa gaman.

Hef ekkert fleira að segja frá í bili.
Fríða
28janúar
Þá eru næstum því 3 vikur búnar af skólanum. Námið gengur ágætlega hjá mér, nema þessi blessaða stærðfræði hjá mér. Ég er á sama róli og seinast, sem sagt ekki að skilja þetta rugl.. Stærðfræðikennarinn heldur að ég sé löt í tímum og vilji ekki gera neitt. Það er bara ekki satt. Hvernig í ósköpunum á ég að getað reiknað þessi dæmi ef ég skil þau ekki?
Ég eignaðist lítinn frænda þann 25. janúar. Alveg ofsalega sætur.. Inga systir á hann. Sá hann bara á mynd sem var tekin af honum upp í fæðingardeild. Verst að ég gat ekki séð hann um helgina því að veðrið var svo klikkað á milli RVK og Selfoss. Ég ætla mér samt að gera það í vikunni. Veðrið verður þá að vera gott.. því að ég meika ekki að sitja í bíl í klikkuðu roki og hugsa um það að bíllinn gæti fokið af veginum í næstu vindhviðu.. Ojj..
Svo er Kitta mín með lítinn bumbubúa í mallanum sínum..

Hún á von á sér í sumar, eða þann 10. júlí. Hlakka geggjað mikið til! Hún sendi mér um daginn bumbumynd af sér. Bumban er ekkert stór en það sést alveg að það sé eitthvað þarna inni.

Geggjað sætt!!
KV. Fríða
04janúar
Ég strengdi áramótaheiti eins og margir gerðu á áramótunum. Hugsaði mig um lengi, þar til að ég varð að sitjast niður og skrifa niður lista. Þarf greinilega að venja mig af mörgum ósiðum og venja mig á marga góða siði í staðinn. 
1. Númer eitt, tvö og þrjú, hætta að reykja!
4. Kaupa mér gönguskó
5. Fara út að labba á hverjum degi
6. Vera sparsöm með launin mín
7. Vera dugleg að leggja til hliðar smá pening fyrir næsta sumar
8. Standa mig vel í náminu
9. Ná stærðfræðinni á árinu
10. Vera duglegri að sýna frumkvæði heima. Eins og með þrif
Tel fleira upp þegar ég man eftir því. 
Hlakka samt til að byrja í skólanum. Ó mæ, flóafár eftir nokkrar vikur!! 
25desember
Margt hefur gerst frá því að ég bloggaði seinast.
Ég lauk önninni með glæsibrag, var með sko þrjár 7 og eina 8. Var sko sátt við það. Svo gerðist eitt ótrúlegt sem hefur líklegast aldrei skeð á minni skólagöngu í fsu. Ég fékk 9 í mætingu!

Það hefur aldrei skeð.. var oftast bara annars staðar að leika mér í tölvunni þegar ég átti að vera í tímum í denn. En ekki núna. Það var sko tekið á því og reynt að ná önninni með glæsibrag. Ég er líka bara sátt.

Reyndar náði ég ekki stærðfræðinni en það er bara eitthvað sem ég verð að takast á við á næstu önn. Þýðir ekkert annað.
Ég er búin að vera að vinna eins og brjálæðingur frá því að ég var búin í prófum. Hef unnið hverja einustu helgi frá því í nóvember. Er reyndar farin að finna fyrir smá þreytu en sú þreyta fer þegar ég fæ fríhelgi eftir 2 vikur. Það varð eiginlega hálfgerð mannekla í búðinni eftir að prófin voru búin, því að stór hluti af krökkunum sem voru þarna, vildu ekki taka að sér mikla aukavinnu og það fóru nokkrir krakkar út á land rétt fyrir jól. En þetta er bara auka peningur fyrir mig og hitt duglega fólkið í búðinni.

Talandi um það, ég var að vinna á aðfangadag og mikið var það skemmtilegt! Það myndaðist ákveðin stemning þegar fólk var að koma og kaupa það allra nauðsynlegasta fyrir jólin. Svo vorum við nokkur með jólasveinahúfur, svaka stuð!

Ég fékk alveg æðislegar jólagjafir í gær. Ég ætla í fyrsta skipti að telja þær upp á netinu:
- Pottasett frá mömmu og pabba
- Brúðkaupsmynd af Tinnu systir og Finni, frá Tinnu og Finni
- Wonderbra frá Lilju tvibbu
- Kampavínsglös frá Ingu systir og fjölskyldu
- DVD, CD, wonderbra og bolur frá Jóni kæró
- Lampi og sængurföt frá tengdapabba og konu
- Silkináttslopp frá tengdamömmu og karli (Bara getnaðarlegt!
)
- Steikarhnífapör frá ömmu
- Vettlinga og konfekt frá ömmu Laugu (amma hans Jóns)
- Rafmagnstannbursti og handklæði frá stjúpsystkinum hans Jóns
- Quality Street nammi frá Lilju frænku
- Partý og co frá Sigurlaugu systir hans Jóns
- Andlitssápa, skrúbb og meiri sápa frá Ágústu
- Ástarolía og baðsalt frá Gunný
- Úber hárnæringu frá Guðrúnu
- Og svo síðast en ekki síst, diskóbaðEndur frá Óla! Þær eru geggjað fyndnar og flottar!

Þetta voru bara mjög fallegar og skemmtilegar gjafir og ég þakka kærlega fyrir mig.
Gleðileg jól og hafið það sem best yfir hátíðarnar.

Kv. Fríða
04desember
Ég nenni ekki að blogga strax.. geri það á morgun.. eða hinn..
Hef ekkert bloggað síðan jörðin skalf á Selfossi. Ekki sniðugt. Ég er byrjuð í prófum. Búin með íslenskuna og stærðfræðina. Íslenskan gekk vel en það fór ekki eins vel með stærðfræðina, eins og ég bjóst við.. En jæja, tek þá bara áfangann aftur. Allt í læ svo sem. Hlakka til að hitta Kristíni aftur! 
Lilja og Aggi api hafa verið hérna í viku. En þau fara á morgun til Akureyrar. Hví? Jú, Aggi er að fara í hálskirtlatöku, Lilja hjúkra'nn og ráðskast með hann næstu daga á eftir. 
Lilja er sko best.. Hún er sko LANGBESTASTA systir í öllum heiminum..
Hún samdi vísu sem ég er ekki alveg viss á um hvern hún er að tala til.. 
Tendrum húsið með neyðarblysum - Tralalalalalalalala
Skjótum fílfið með stórum riffli - Tralalalalalalala
Reynið öll við manninn hennar - Tralalalalalalala
Brosum og njótum útsýnisins - Tralalalalalalala
Þetta rauðletraða er eftir hana Lilju. Bara svona láta ykkur vita af því! Lilja braust inn á bloggið mitt og skrifaði þetta rauða. Tinna er langbesta systir mín, gefðu mér plasma í jólagjöf!
21nóvember
Ó mæ gat, ég hélt ð ég myndi deyja úr hræðslu í gærkveldi og í nótt!
Í gærkveldi um kvöldmataleitið byrjuðu lætin. Endalaust mikið af jarðskálftum á 2 klst tímabili. Það mældust 49 skjálftar á þessu tímabili. Og upptökin áttu sér mest stað hjá Laugardælum við Selfoss.
Í byrjun fannst mér þetta vera bara nokkrir kippir og svo ætti ekki að koma meira. En svo hélt þetta áfram endalaust! Sumir kippirnir voru að koma á nokkurra mínútna millibili og sumir voru að koma með 30 sekúndna millibili! Þetta var óhugnalegt!! Svo hætti skjálftahrinan loks um 19:45 og þá hélt ég að þetta væri búið. Ég var búin að reyna að halda ró minni útaf litlu börnunum sem voru heima með okkur mömmu og Tinnu en það var ekki alveg að takast hjá mér. Arndís María var að upplifa sína fyrstu skjálfta og fékk að upplifa það á þennan hátt. Ömurlegt.. enda fékk barnið vægt taugaáfall.
En þetta var svo ekki búið.. Því að um 21:40 byrjaði allt að titra aftur og sá seinasti í þeirri hrinu mældist klukkan 22:15. Það kom smá hlé þar. Þá hafði maður tíma til þess að hafa sig til í bólið og liggja hræddur í smá stund.. Lætin byrjuðu aftur um miðnætti og stóðu í alla nótt. Mest var ég hrædd við kippinn sem kom um hálf fimm leitið í morgun því þá hafði ég legið vakandi í alla nótt, en aðeins verið vör við litla kippi! 
Ég hef verið ALVEG GLAÐVAKANDI frá því að stóri kippurinn kom í morgun! 
Annars var söngkeppnin alveg þrælfín. Gunný, Halla og Elíntríó gekk alveg fínt. Þau unnu reyndar ekki neitt en þau stóðu sig öll með prýði og þetta var mjög flott hjá þeim. Get ekki sagt það sama um sigurlagið.. en það er allt annað mál! 
14nóvember
Já endalausar óléttur eru í gangi núna! Það er önnu hver kona/stelpa ólétt á Selfossi. Svo þegar þessar konur eru búnar að eiga börnin, þá verða bara næstum því helmingi fleiri konur/stelpur óléttar til viðbótar. Veit alveg endlaust mikið af óléttum.. Böns af þeim!
(7, 9, 13!!)
Nenni ekki að tuða um blessuðu jólin í þetta sinn. Geri það þegar það er kominn desembermánuður. En ég get aftur á móti talað um leiðinlega nemendur sem leynast í þessum skringilegum skóla! Já, það eru sko nokkur fífl með mér í stærðfræði en eitt fíflið er þó mest áberandi af þessum himbigimbum! Það er bregst ekki þegar það eru 20 mín eftir af tímanum, þá byrjar hann: ,,Jæja.. er ekki komið gott?" eða ,,Jæja, er tíminn ekki að verða búinn?" Ef kennarinn vill ekki ansa þessu þá byrjar suðið: ,,Æ gerðu það, megum við fara? Æ plís.. það eru allir komnir fram og svona.. æ gerðu það kennari minn!?!" Ég gæti orðið vitlaus!
Kennarinn var nú að hjálpa mér í seinasta tíma þegar fílfið byrjaði. Ég tuldraði með sjálfri mér hvort að helvítis fíflið ætli nokkurn tímann að hafa á sér trantinn lokaðann til tilbreytingar. Kennarinn hafði víst heyrt í mér því að hún spurði mig afhverju ég hafði ekki sagt þetta hærra.
Þarna fékk ég "leyfi" til þess að segja þessu fífli til syndanna. En ég nýtti mér ekki tækifærið, Ég ætla að gera það í næsta tíma þegar fíflið byrjar.
Vá hvað ég ætla að sleppa mér..
Söngkeppnin er á morgun. Úff.. mikið held ég að sumir séu orðnir stressaðir fyrir ósköpin. Það er Halli Ívar og Jóhannes Ella spilar undir, Gunný með Sölku og Sigrúnu Ernu í bakröddum og svo eru það Elín, Harpa Gjé og Sóley með tríó. Hlakka til að sjá þau spreyta sig.. Hef ekki langað síðastliðnu ár að fara á þessa keppni en það eru óvenju margir sem ég þekki þarna. Svo er Bjarni frændi að keppa líka en ég held ekki með honum því að hann er í nemendaráðinu. 
05nóvember
Síðan að ég byrjaði í skólanum hef ég aldeilis rekið mig á aldursmuninum hjá mér og busunum. Það eru heil 3 ár! Ég er í dönsku 102, sem sagt með busum, og ég fékk að heyra það í dag að ég lýt ekki út fyrir að vera 19 ára. Nei.. heldur 21 eða 22 ára! Vá ég var móðguð.. ég hef "mikið" reynt að halda í ungdóminn frá því að ég varð 18 ára gömul. Því að það hefur engum dottið í hug að spyrja mig um skilríki þegar ég kaupi mér það slæma vonda. Ja hérna.. ég tek því sem hrósi þegar ég er í miðbæ RVK en ekki í skólanum. 
Guð.. ég er búin að vera að haga mér eins og fífl í skólanum! Hvað ætli að fólk hugsi?
: ,,OMG! hvað er gamla beljan að röfla núna?" eða ,,Er ellin farin að segja svoldið til sín? Tjahh, hún fer líklegast að vinna í Horninu í kvöld, hún á sér ábyggilega ekkert líf." 
Ég meina, maður veit aldrei! En já, ég fékk að heyra það í dag að ég liti ekki út fyrir að vera 19 ára frá litlu busagrey. Hann hélt að ég væri svona um 21 til 22 ára. Greyið hélt að ég væri SVO mikill tossi að ég væri búin að vera í þessum áfanga frá því að ég var sjálf busi. ARG!!
Er ekki allt í orden?! Ég væri ábyggilega löngu búin að fremja sjálfsmorð ef ég ætti að fara að taka dönsku 102 í 12. skiptið!! Annars sakna ég Kittu eins og alltaf.
30október
Hvað haldiði að ég hafi gert í dag? Gleymt að taka tölvuna með mér í skólann, eins og ég ætlaði mér alltaf að gera! Týpisk ég eitthvað.

Úr því að ég gleymdi fkn tölvunni heima, þá þarf ég bara að gjöra svo vel að dúsa inn á bóksafni skólans í tölvu þar. Því að ég held að það séu allir komnir með ógeð af mér á borðinu, þar sem ég er oftast að suða í þeim um tölvurnar þeirra. Nei, nei.. ég vona ekki.

Ógeðslega veður á Íslandi í dag, eða allavegana á Suðurlandinu. Það snjóar eins og það eigi að kæfa bæinn en svo upp úr hádegi byrjaði slyddan og núna RIGNING!! Þannig að það er slabb út um allt! Skórnir mínir eru löngu orðnir votir eftir veðráttuna og ég geggjað pirruð, inn'á bókasafni að blogga!

Jæja Kitta, ég vona bara að þú saknir Íslands pínulítið útaf færlsunni og þig langi til þess að flytjast aftur til Íslands!